|
|
|
 |
Hopp og Skopp
Hopp og Skopp var stofnað í árdaga rétt eftir síðustu aldamót, eða árið 2001.
Fyrirtækið byrjaði smátt og í upphafi var fararkosturinn einn hestur og 2 hjólbörur og leiktækin voru 4 litlir hoppukastalar.
Á þessum tímum var hart í ári, sérstalega eftir efnahagskreppuna á Bíldudal.
Síðan þá hefur margt vatn runnið til sjávar og í dag telur leiktækjafloti okkar á fjórða tug tækja sem hafa flakkað víða um landið.
Á ferðum okkar höfum við kynnst og hitt ótrúlegasta fólk. Flest mjög skemmtilegt og annað skemmtilega leiðinlegt og ekki má gleyma fjöldann allan af furðufuglum og alls kyns týpum
Versta veðrið
Eskifjörður hampar enn titlinum sem versta veður í sögu fyrirtækisins en í loks hátíðardags í júní árið 2005 var ólýsanlega ógeðsleg rigning og illskuveður sem barði kinnarnar á manni.
En samt sem áður vóg upp á móti frábært fólk á Eskifirði sem við hittum þar.
|
|
 |
|